Oddgeirshólar (Hólagötu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2007 kl. 11:42 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2007 kl. 11:42 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Oddgeirshólar


Oddgeirshólar

Húsið Oddgeirshólar við Hólagötu 40. Friðfinnur Finnsson, kafari og kaupmaður í Eyjabúð, byggði húsið og færði nafnið yfir á það frá því húsi er hann bjó í lengst af og stendur nokkru ofar og sunnar, við Höfðaveg. Það hús var síðan nefnt Stuðlaberg. Á jarðhæð Oddgeirshóla var lengi vel starfrækt matvöruverslun en nú eru þar til húsa Tannlæknastofa Heimis og nuddstofa. Árið 2006 bjó Kristmann Karlsson kaupmaður ásamt konu sinni, Kristínu Bergsdóttur á efri hæð húsins.