Nikolína Rósa Magnúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. mars 2022 kl. 19:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. mars 2022 kl. 19:32 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Nikolína Rósa Magnúsdóttir (Nanna Rósa) húsfreyja, hjúkrunarfræðingur fæddist 7. apríl 1932 á Tangagötu 31 á Ísafirði og lést 22. júní 2021. .
Foreldrar hennar voru Magnús Eiríksson frá Eiríksbakka á Stokkseyri, vélstjóri á Ísafirði, síðast í Hraunbúðum, f. 24. júní 1899, d. 3. febrúar 1985, og kona hans Jóna Kristín Guðjónsdóttir frá Ármúla í Nauteyrarhreppi, húsfreyja, síðast á Hlíðarvegi 16 á Ísafirði, f. 6. mars 1907 á Ísafirði, d. 9. júní 1980.

Nikolína Rósa var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann á ljósmyndastofu og í bakaríi á Ísafirði.
Hún lærði hjúkrun, lauk námi í Hjúkrunarskóla Íslands 1955 og vann við hjúkrun við Sjúkrahúsið á Ísafirði, Baldwin Community Hospital í Baldwin, Wisconsin, við Sjúkrahús Keflavíkur, Barnaspítala Hringsins og Kleppsspítalann.
Hún fluttist til Eyja 1961, vann lengst við Sjúkrahúsið í Eyjum og í Hraunbúðum. Hún lét af störfum 2001.
Nikolína var virkur félagi í Slysavarnadeildinni Eykyndli, var formaður stjórnar í fimm ár og var virk í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Ísfirðingafélaginu, Norræna félaginu og starfaði í Sundráði ÍBV.
Þau Tryggvi giftu sig 1963, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Brekkugötu 9.
Tryggvi lést 2014.
Nikolína Rósa dvaldi síðast í Hraunbúðum. Hún lést 2021.

I. Maður Nikolínu Rósu, (13. apríl 1963), var Tryggvi Jónsson frá Mörk, vélsmíðameistari, yfirverkstjóri, f. 11. mars 1925 á Ekru, d. 28. júlí 2014.
Börn þeirra:
1. Magnús Tryggvason íþróttafræðingur, stálsmiður. Hann er kennari í íþróttum og málmsmíðum við Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, f. 18. desember 1964. Kona hans Ragnhildur Eiríksdóttir.
2. Helga Tryggvadóttir náms- og starfsráðgjafi í Reykjavík, f. 22. febrúar 1966. Barnsfaðir hennar Sigurður Friðhólm Gylfason. Barnsfaðir hennar Gísli Matthías Gíslason.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.