Michael Marius Ludvig Aagaard

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2005 kl. 11:37 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2005 kl. 11:37 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Michael Marius Ludvig Aagaard, sýslumaður 1872 til 1891. Hann var danskrar ættar. Kom til Vestmannaeyja einhleypur maður, en giftist 1874 danskri konu af frönskum ættum og kom hún til Eyja vorið 1875. Bjuggu þau fyrst í gömlu húsi, sem Nöjsomhed hét, og var þar sem húsið Stafholt (Víðisvegur 7} var, en fluttust síðar að gömlu Uppsölum (Vestm.braut 51), og bjuggu þar, þar til þau fluttust að Vilborgarstöðum. Honum var 1892 veitt fógetaembættið í Fanö á vesturströnd Jótlands.