Matthildur Guðmundsdóttir (ljósmóðir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. nóvember 2006 kl. 10:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. nóvember 2006 kl. 10:51 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Matthildur Guðmundsdóttir ljósmóðir fæddist að Prestbakkakoti á Síðu í V-Skaft. 15. ágúst 1847 og lézt að Löndum í Eyjum 14. febr. 1937.
Foreldrar hennar voru Guðmundur bóndi á Síðu, síðar á Kálfafelli í Fljótshverfi, f. 23. marz 1818, d. 24. júlí 1868, Guðmundar bónda á Fossi, f. um 1787, Hálfdánarsonar og Guðlaugar Þorláksdóttur frá Maríubakka. Móðir Matthildar og kona Guðmundar var Guðný, f. 11. ágúst 1823, d. 24. nóv. 1873, Páls prófasts á Prestbakka og í Hörgsdal, f. 17. maí 1797, d. 1. nóv. 1861, Pálssonar og fyrri konu Páls prófasts (skildu 1842), Matthildar Teitsdóttur í Seli í Reykjavík, Þórðarsonar. Fósturforeldrar Matthildar ljósmóður voru Árni Gíslason sýslumaður á Kirkjubæjarklaustri og Elín Árnadóttir frá Dyrhólum.
Matthildur tók ljósmæðrapróf hjá Jóni Hjaltalín landlækni í Reykjavík 5. okt. 1871; framhaldsnám stundaði hún hjá Sigurði Ólafssyni lækni í Vík í Mýrdal og endurtók ljósmæðrapróf í Rvk sama ár.
Hún var bústjóri á búi fósturföður síns að Holti á Síðu frá 18 ára aldri um skeið. Ljósmóðir var hún í Dyrhólahreppsumdæmi 1. okt. 1871 – 30. maí 1905. Um hana skrifar Eyjólfur Guðmundsson bóndi og rithöfundur á Hvoli í Mýrdal (handrit): „.....hún var sem læknir í byggðarlaginu sem um flest var vísað til, meðan héraðslæknir var ekki nær en vestur í Hvolhreppi eða austur á Síðu.” Hún var heiðruð af konum í Dyrhólahreppi 1905.
Matthildur var starfandi ljósmóðir í Eyjum 1905 – 1922. Lengst dvaldi hún á heimili dóttur sinnar, Elínar á Löndum. Hún var blind síðustu æviárin.
Maki (27. júlí 1872): Þorsteinn Hjörtur bóndi og hreppstjóri að Dyrhólum í Mýrdal, en búsettur í Eyjum frá 1905, f. 21. ágúst 1847, d. 10. nóv. 1914 að Löndum, Árnason bónda að Dyrhólum Hjartarsonar og Elínar Þorsteinsdóttur frá Dyrhólum.
Börn: 1) Friðrik kennari í Mýrdal, síðar bókhaldari á Eskifirði, vann um skeið ýmiss störf í Kanada, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja, en síðast bókhaldari í Rvk, f. 4. apríl 1873, d. 28. jan. 1957, ókv. og barnlaus; 2) Guðný húsfreyja, f. 17. maí 1874, d. 24. nóv. 1964. Maki I: Jón Lúðvígsson skósmíðameistari á Seyðisfirði. Maki II: Christian Björnæs, norskrar ættar, símaverkstjóri í Reykjavík; 3) Gróa Sigríður húsfreyja, f. 17. apríl 1875, flutti til Ameríku um 1910, lézt þar. Maki I: Hallvarður Ólafsson, búsettur í Ameríku. Maki II: Kristján Einarsson, búsettur í Ameríku; 4) Elín Ragnheiður húsfreyja, f. 24. júní 1879, d. 27. febr. 1968. Maki: Jón Þorsteinsson bakari á Eskifirði; 5) Elín húsfreyja á Löndum, f. 3. jan. 1882, d. 28. júní 1978: Maki: Friðrik Svipmundsson formaður og útgerðarmaður á Löndum, f. 15. apríl 1871 á Loftsölum í Mýrdal, d. 3. júlí 1935 í Reykjavík. Meðal barna þeirra var Ásmundur skipstjóri faðir Friðriks skipstjóra og skólastjóra; 6) Matthildur húsfreyja, f. 31. des. 1887, d. 24. júlí 1960. Maki: Þórarinn Gíslason Engilbertssonar gjaldkeri á Lundi.

Heimildir:

  • Ljósmæður á Íslandi. Rvk 1984.
  • Hver er maðurinn? Rvk 1944.
  • Kennaratal.