Markús Jónsson (Ármótum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 12:24 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 12:24 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Markús

Markús Jónsson fæddist 3. apríl 1920 og lést 27. apríl 1998.
Foreldrar hans voru Jón Gíslason og Þórunn Markúsdóttir.
Fyrri kona hans var Auður Ágústsdóttir, f. 24. júní 1922, d. 6. júlí 1963. Síðari kona hans var Anna Friðbjarnardóttir. Þau bjuggu að Skólavegi 14, en fluttu til Reykjavíkur árið 1987 og bjuggu þar síðustu árin.

Markús var skipstjóri en vann hjá Olís síðustu starfsárin.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Markús:

Markús ég meina snaran
meiðinn Jóns býsna veiðinn.
Þórunnar gniðs á grunni
gætir í formanns sæti,
dýnur þó duggu píni
dökku í hrinu rökkri.
Ármóts ég piltinn pára,
prýðis skipstjórann lýða.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Garður.is.
  • Blik, skólaskýrslur.