Markús Jónsson (Ármótum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 10:08 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 10:08 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Markús Jónsson fæddist 3. apríl 1920 og lést 27. apríl 1998.
Foreldrar hans voru Jón Gíslason og Þórunn Markúsdóttir.
Fyrri kona hans var Auður Ágústsdóttir, f. 24. júní 1922, d. 6. júlí 1963. Síðari kona hans var Anna Friðbjarnardóttir. Þau bjuggu að Skólavegi 14, en fluttu til Reykjavíkur árið 1987 og bjuggu þar síðustu árin.

Markús var skipstjóri en vann hjá Olís síðustu starfsárin.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Markús:

Markús ég meina snaran
meiðinn Jóns býsna veiðinn.
Þórunnar gniðs á grunni
gætir í formanns sæti,
dýnur þó duggu píni
dökku í hrinu rökkri.
Ármóts ég piltinn pára,
prýðis skipstjórann lýða.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Garður.is.
  • Blik, skólaskýrslur.