Markús Erlendsson (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. desember 2013 kl. 18:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. desember 2013 kl. 18:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Markús Erlendsson''' vinnumaður fæddist 17. mars 1855 og lést í Vesturheimi.<br> Foreldrar hans voru Erlendur Ingjaldsson bóndi á Kirkj...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Markús Erlendsson vinnumaður fæddist 17. mars 1855 og lést í Vesturheimi.

Foreldrar hans voru Erlendur Ingjaldsson bóndi á Kirkjubæ, f. 28. febrúar 1828, drukknaði 12. janúar 1887 og kona hans Ingigerður Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 1830, d. 26. apríl 1897.

Markús var á 1. ári með foreldrum sínum á Kirkjubæ 1855, niðursetningur á Kirkjubæ hjá Magnús Oddssyni, þá ekkli, 1860, niðursetningur í Litlabæ 1870 hjá Valgerði Jónsdóttur og Einari Jónssyni. Hann var vinnumaður í Presthúsum 1880 og vinnumaður í Godthaab 1890.
Markús fór til Vesturheims 1891 frá Godthaab.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.