Margrét Runólfsdóttir (Jaðri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. mars 2013 kl. 13:33 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. mars 2013 kl. 13:33 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Margrét Runólfsdóttir''' húsfreyja á Jaðri, síðar í Reykjavík, f. 6. júní 1896, d. 24. júlí 1981.<br> Faðir hennar var [[Runólfur Jónasson (Geirlandi)|Ru...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Runólfsdóttir húsfreyja á Jaðri, síðar í Reykjavík, f. 6. júní 1896, d. 24. júlí 1981.
Faðir hennar var Runólfur frá Hausthúsum á Stokkseyri (hann byggði það hús 1896; fluttist til Eyja 1920), síðar á Geirlandi, f. 7. apríl 1872 í Magnúsfjósum í Sandvíkurhreppi, Árn., d. 19. júlí 1946, Jónasson bónda í Magnúsfjósum 1870, í Eyvakoti 1890, f. 28. febrúar 1838 í Kaldaðarnessókn, d. 17. mars 1894, Hannessonar bónda í Ranakoti efra á Stokkseyri 1832-1838, áður í Langholti í Flóa, f. 23. ágúst 1786, d. 2. febrúar 1839, Runólfssonar, og konu Hannesar Runólfssonar, Vilborgar húsfreyju, f. 22. maí 1808 í Vesturkoti á Skeiðum, d. 18. janúar 1860, Ingimundardóttur á Syðri-Brúnavöllum á Skeiðum Sigvaldasonar.
Móðir Runólfs Jónassonar og kona Jónasar í Magnúsfjósum var Margrét húsfreyja, f. 1839, Bjarnadóttir bónda á Stóra-Hálsi í Úlfljótsvatnssókn 1845, f. um 1794 á Hala í Ölfusi, d. 7. september 1860, Kolbeinssonar, og konu Bjarna, Málmfríðar húsfreyju, f. 1794, Ólafsdóttur.

Móðir Margrétar Runólfsdóttur og kona Runólfs Jónassonar var Sólrún frá Hausthúsum á Stokkseyri (Þau Runólfur byggðu það hús 1896), f. 28. maí 1867, d. 2. september 1941, Guðmundsdóttir bónda á Þinghól í Hvolhreppi 1870, f. 10. september 1826, d. 8. ágúst 1907, Árnasonar bónda á Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð, f. 1796, d. 26. febrúar 1845, Vigfússonar og konu Árna Vigfússonar, Guðrúnar húsfreyju, f. 14. janúar 1805, d. 28. maí 1890, Magnúsdóttur. Móðir Sólrúnar og kona Guðmundar í Þinghól var Þóra húsfreyja, f. 31. janúar 1823, d. 20. júní 1888, Jónsdóttir bónda á Háarima í Þykkvabæ og Syðri-Rauðalæk í Holtum, f. 17. september 1789 í Tobbakoti í Þykkvabæ, d.14. mars 1852, Hólmfastssonar, og fyrri konu Jóns Hólmfastssonar, Sigríðar húsfreyju, f. 24. apríl 1794, d. 4. desember 1839, Felixdóttur.

Þau Sólrún Guðmundsdóttir og Runólfur Jónasson bjuggu á Geirlandi 1920.
Margrét Runólfsdóttir var systir
1. Runólfs í Bræðratungu, útgerðarmanns, f. 20. desember 1899;
2. Sigurmundar Runólfssonar verkstjóri, f. 4. ágúst 1904;
3. Jónasínu á Jaðri, húsfreyju, f. 2. september 1894 og
4. Ingibjargar Runólfsdóttur húsfreyju í Litla-Hvammi, f. 13. janúar 1907.

Margrét fluttist til Eyja 1914. Hún var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Eyjólfur Gíslason skipstjóri. Þau Margrét bjuggu á Jaðri, skildu, og flutti Margrét til Reykjavíkur.
Barn þeirra Eyjólfs var:
1. Eyjólfur Hvannberg Eyjólfsson eldsmiður, f. 23. nóvember 1919, d. 28. desember 2000.
II. Síðari maður Margrétar var Dagbjartur Gíslason, f. 1. maí 1897, d. 29. desember 1981.
Börn þeirra:
1. Jónas Þórir Dagbjartsson tónlistarmaður, f. 20. ágúst 1926.
2. Runólfur Dagbjartsson múrari, f. 21. apríl 1923, d. 19. maí 2008. Hann fluttist til Eyja og bjó þar síðan, síðast að Hraunbúðum.
3. Kristinn Helgi Dagbjartsson verslunarmaður í Reykjavík, f. 13. janúar 1930, d. 26. júlí 1979.


Heimildir

  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.