Magnús Karl Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. október 2013 kl. 13:25 eftir Glumur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. október 2013 kl. 13:25 eftir Glumur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Karl Guðmundsson, Reykholti, fæddist í Reykjavík 4. maí 1903 og lést 10. maí 1993. Karl fór ungur til Eyja með foreldrum sínum, Guðmundi Magnússyni trésmíðameistara og Helgu Jónsdóttur.

Karl Guðmundsson

Sjómennsku hóf Karl á unga aldri og formennsku hóf hann á Skúla fógeta. Síðar var hann meðal annars með Tjald og Óðinn.

Karl var giftur Unni Jónsdóttur og áttu þau þrjá syni.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.