Magnús Bergsson (Hjalteyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. ágúst 2019 kl. 17:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. ágúst 2019 kl. 17:51 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Magnús Bergsson.

Magnús Bergsson frá Hjalteyri, rafvirki fæddist 3. október 1942 í Ásnesi og lést 15. nóvember 2018.
Foreldrar hans voru Jóhann Bergur Loftsson, sjómaður, vélstjóri frá Klauf í V-Landeyjum, f. 27. október 1911, d. 25. janúar 1985, og Ragnhildur Jónía Magnúsdóttir húsfreyja frá Hryggjum og Dyrhólum í Mýrdal, f. 19. október 1903 í Hryggjum, d. 7. ágúst 1992.

Börn Ragnhildar og Bergs:
1. Karl Bergsson bifvélavirkjameistari, varaslökkviliðsstjóri á Selfossi, f. 18. ágúst 1939 í Ásnesi.
2. Magnús Bergsson rafvirki, f. 3. október 1942 í Ásnesi, d. 15. nóvember 2018.
3. Þórey Bergsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur á Akureyri, f. 3. október 1942 í Ásnesi.

Bergur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk fjórðabekkjar-gagnfræðaprófi við Gagnfræðaskólann 1959, vann hjá Símanum í Eyjum og við lagningu vatnsveitunnar til Eyja. Hann nam rafvirkjun og vann við iðnina, lengst í Geisla hjá Þórarni Sigurðssyni.
Bergur lést 2018, barnlaus.

I. Sambýliskona Bergs var Guðrún Ólafsdóttir, f. 27. júlí 1968. Foreldrar hennar Ólafur Rúnar Dýrmundsson ráðunautur, f. 18. maí 1944 í Reykjavík, og kona hans Svanfríður Sigurlaug Óskarsdóttir bókasafnsfræðingur, f. 18. febrúar 1944 í Reykjavík.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.