Magnús Magnússon (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2006 kl. 09:24 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2006 kl. 09:24 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Magnússon fæddist 12. september 1905 að Vesturhúsum og lést 26. maí 1978. Hann var sonur Magnúsar Guðmundssonar og Jórunnar Hannesdóttur. Kona Magnúsar var Kristín Margrét Ásmundsdóttir frá Seyðisfirði.

Þrátt fyrir að Magnús hafi alist upp á sjómannsheimili ákvað hann að læra trésmíði hjá Jóhanni Jónssyni frá Brekku og varð húsasmíða- og húsgagnasmíðameistari. Hann ásamt fleirum stofnaði síðar fyrirtækið Smið hf. árið 1945 sem hann átti fram yfir gos. Magnús var heiðursfélagi í Iðnaðarmannafélaginu, virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og eldheitur Týrari.