Magnús Magnússon (Felli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 11:43 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 11:43 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Magnús Magnússon


Magnús Magnússon, Felli var fæddur 8. júlí 1870 á Rangárvöllum og lést 25. september 1940. Kona Magnúsar var Kristín Jónsdóttir. Þau eignuðust einn son, Magnús. Kristín bjó síðar í Hólshúsi.

Magnús kom til Vestmannaeyja um aldamótin 1900 og var formaður þar með opið skip í nokkur ár en 1907 keypti hann Kristbjörgu og var formaður á henni allt til 1926. Magnús var talinn í fremstu röð formanna. Einnig var hann bjargveiðimaður mikill.


Heimildir

  • Jón Sigurðsson. Þegar slysið varð á mb. Portlandi. Sjómannablað Vestmannaeyja. 1963.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.