Magnús Magnússon (Bjarmalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. nóvember 2019 kl. 15:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. nóvember 2019 kl. 15:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Magnús Magnússon


Magnús

Magnús Magnússon, Bjarmalandi, fæddist 6. október 1882 í Rauðasandshreppi og lést þann 22. október árið 1961. Magnús fór til Vestmannaeyja árið 1909 og varð fyrst vélamaður á Dagmar. Árið 1918 var Magnús formaður með Báru í eina vertíð. Eftir það er Magnús vélamaður á ýmsum bátum allt til ársins 1926 þegar hann ræðst í að byggja dráttarbraut. Þar byggði Magnús tvo 23 lesta báta auk þess sem hann gerði við báta til ársins 1942. Þá seldi Magnús fyrirtækið.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.