Magnús Júlíus Jónsson (Þingeyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 09:56 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 09:56 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Magnús Jónsson


Magnús Júlíus.

Magnús Júlíus Jónsson sjómaður á Þingeyri fæddist 1. júlí 1905 í Fagradal í Eyjum og lézt 1942 í Vesturheimi.
Foreldrar hans voru Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1867 og Jón Jónsson sjómaður, f. 1881.
Magnús Júlíus var í Lambhaga hjá foreldrum sínum 1920.
Hann stundaði sjómennsku, en fluttist með foreldrum sínum til Vesturheims 1924.
Kona hans var Bjarney Kristín Kristmundsdóttir.


Heimildir

  • Manntal 1920.
  • Landeyingabók - Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.