„Magnús Helgason (Engidal)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
'''Magnús Helgason''' fæddist í Grindavík 8. september 1896 og lést 10. október 1976.  
[[Mynd:Magnús Helgason.jpg|thumb|220px|Magnús]]


Árið 1920 fór hann til Vestmannaeyja og settist þar að í [[Engidalur|Engidal]]. Fyrst var Magnús endurskoðandi hjá [[Eyþór Þórarinsson|Eyþóri Þórarinssyni]]. Síðar var hann skrifstofumaður hjá [[Jón Einarsson|Jóni Einarssyni]] á [[Stóri Gjábakki|Gjábakka]].  
'''Magnús Helgason''' fæddist að Húsatóftum við Grindavík 8. september 1896 og lést 10. október 1976. Foreldrar hans voru Herdis Magnúsdóttir og Helgi Þórðarson, bæði ættuð úr Ölfusi, hún frá Litla-Landi, en hann frá Króki. Magnús fluttist á öðru ári til Hafnarfjarðar með foreldrum sínum, þar sem hann átti heima til 18 ára aldurs, en þá fluttust þau til Reykjavíkur. Hann stundaði nám við Flensborgarskóla og lauk þaðan prófi. Seinna lauk hann prófi frá Verzlunarskóla Íslands.


Árið 1927 tók hann hið minna fiskimannapróf hjá [[Sigfús Scheving|Sigfúsi Scheving]] og í kjölfarið tók hann við formennsku á bátnum [[Hebron]].
Magnús kvæntist Magnínu Sveinsdóttur frá Engidal v/Skutulsfjörð 23. júni 1919. Sama ár fluttust þau til Vestmannaeyja, Í Vestmannaeyjum fæddust þeim fimm börn, þeirra á meðal var [[Magnús H. Magnússon]] bæjarstjóri Vestmannaeyja 1966-1975.


Magnús var gjaldkeri í Reykjavík síðustu starfsár sín. Hann lést í Reykjavík, 80 ára gamall.
Magnús og Magnína settust að í [[Engidalur|Engidal]]. Fyrst var Magnús endurskoðandi hjá [[Eyþór Þórarinsson|Eyþóri Þórarinssyni]]. Síðar var hann skrifstofumaður hjá [[Jón Einarsson|Jóni Einarssyni]] á [[Stóri Gjábakki|Gjábakka]].  Síðan setti hann á stofn eigin verslun.
 
Um þetta leyti varð mikil trúarvakning í Vestmannaeyjum og hrifust þau hjónin þar með. Þau voru meðal stofnenda [[aðventsöfnuðurinn|aðventsafnaðarins]] þar og urðu meðal virkustu meðlima. Magnína var um langt skeið í forystu liknarstarfs safnaðarins, fyrst í Vestmannaeyjum og siðar i Reykjavík  
og fulltrúi í mæðrastyrksnefnd.
 
Árið 1927 tók hann hið minna fiskimannapróf hjá [[Sigfús Scheving|Sigfúsi Scheving]] og í kjölfarið tók hann við formennsku á bátnum [[Hebron]] sem hann átti í félagi við nokkra aðra.
 
Árið 1930 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur, þar sem þau áttu heima síðan, og starfaði Magnús við söfnuð aðventista i nær fjóra áratugi, sem gjaldkeri Samtaka sjöunda dags aðventista á Íslandi. Hann lést í Reykjavík, 80 ára gamall.
 
== Myndir ==
<Gallery>
Mynd:KG-mannamyndir 7289.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 7290.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 7291.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 7292.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 7293.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 12401.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 12880.jpg
 
</gallery>


{{Heimildir|
{{Heimildir|
* ''Sjómannablaðið Víkingur.'' 5 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.}}
* ''Sjómannablaðið Víkingur.'' 5 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
* Minningargreinar í ''Morgunblaðinu'', 19. október 1976.
}}


[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Formenn]]

Útgáfa síðunnar 7. ágúst 2012 kl. 08:28

Magnús

Magnús Helgason fæddist að Húsatóftum við Grindavík 8. september 1896 og lést 10. október 1976. Foreldrar hans voru Herdis Magnúsdóttir og Helgi Þórðarson, bæði ættuð úr Ölfusi, hún frá Litla-Landi, en hann frá Króki. Magnús fluttist á öðru ári til Hafnarfjarðar með foreldrum sínum, þar sem hann átti heima til 18 ára aldurs, en þá fluttust þau til Reykjavíkur. Hann stundaði nám við Flensborgarskóla og lauk þaðan prófi. Seinna lauk hann prófi frá Verzlunarskóla Íslands.

Magnús kvæntist Magnínu Sveinsdóttur frá Engidal v/Skutulsfjörð 23. júni 1919. Sama ár fluttust þau til Vestmannaeyja, Í Vestmannaeyjum fæddust þeim fimm börn, þeirra á meðal var Magnús H. Magnússon bæjarstjóri Vestmannaeyja 1966-1975.

Magnús og Magnína settust að í Engidal. Fyrst var Magnús endurskoðandi hjá Eyþóri Þórarinssyni. Síðar var hann skrifstofumaður hjá Jóni Einarssyni á Gjábakka. Síðan setti hann á stofn eigin verslun.

Um þetta leyti varð mikil trúarvakning í Vestmannaeyjum og hrifust þau hjónin þar með. Þau voru meðal stofnenda aðventsafnaðarins þar og urðu meðal virkustu meðlima. Magnína var um langt skeið í forystu liknarstarfs safnaðarins, fyrst í Vestmannaeyjum og siðar i Reykjavík og fulltrúi í mæðrastyrksnefnd.

Árið 1927 tók hann hið minna fiskimannapróf hjá Sigfúsi Scheving og í kjölfarið tók hann við formennsku á bátnum Hebron sem hann átti í félagi við nokkra aðra.

Árið 1930 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur, þar sem þau áttu heima síðan, og starfaði Magnús við söfnuð aðventista i nær fjóra áratugi, sem gjaldkeri Samtaka sjöunda dags aðventista á Íslandi. Hann lést í Reykjavík, 80 ára gamall.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 5 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Minningargreinar í Morgunblaðinu, 19. október 1976.