Magnús Guðmundsson (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. nóvember 2005 kl. 00:30 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. nóvember 2005 kl. 00:30 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Guðmundsson var fæddur 2. júní 1872 í Vestmannaeyjum og lést 24. apríl 1955. Foreldrar hans voru Guðmundur bóndi Þórarinsson á Vesturhúsum og Guðrún Erlendsdóttir. Magnús giftist Jórunni Hannesdóttur hafnsögumanns Jónssonar. Þau hjón bjuggu allan sinn búskap á Vesturhúsum í Eyjum. Jórunn lést 24. janúar 1962.


Heimildir

Blik, 23. árg 1962, grein um sögu barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum eftir Þorstein Víglundsson.