Magnús Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júní 2006 kl. 14:52 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júní 2006 kl. 14:52 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Guðmundsson fæddist 27. júní 1872 að Vesturhúsum og lést 24. apríl 1955. Magnús var bóndi og formaður. Eiginkona hans var Margrét Hannesdóttir, dóttir Hannesar lóðs.

Magnús var um áratugi með allra snjöllustu formönnum og fyrstur til að stunda veiðar við Vestmannaeyjar með þorskalínu árið 1898. Einnig byrjaði Magnús á því að leggja þorskanet í sjó við Eyjar. Hann var formaður á Hansínu frá 1906 til 1921. Hann smíðaði nýja Hansínu, Hansínu II, árið 1916. Magnús var aflakóngur 1908.



Heimildir

  • Eyjólfur Gíslason. Hannes Lóðs. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1954.
  • Jón Sigurðsson. Aflakóngar Vestmannaeyja 1906-1929. Sjómannadagsblaðið 1961. 10. árg.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands