Móðuharðindi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 08:30 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 08:30 eftir Skapti (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hér á landi fylgdi svo eitur og alls konar ólyfjan öskufallinu. Það er ekki að ástæðulausu að atburðirnir í kjölfar Skaftárelda nefnast með þjóðinni Móðuharðindi. Uppruna móðunnar má rekja til myndunar bergkvikunnar í möttli jarðar en þar er gasið uppleyst í hraunbráðinni. Þegar svo kvikan nær yfirborði jarðar í eldgosi léttir þrýstingnum og gosgufurnar brjótast út. Þær berast hátt í loft með gosmekkinum, aðallega vatnsgufa, koldíoxíð og brennisteinn. Móðan sem leggur af kólnandi hrauni er svipuð að samsetningu. Brennisteinssamböndin blönduðust raka loftsins, svo úr varð brennisteinssýra , en það var þetta súra regn, sem brenndi göt á skjái, nýrúið fé og mannfólkið auk þess sem það olli hinum ýmsu kvillum og jafnvel dauða.