Loftur Guðmundsson (Svaðkoti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. janúar 2015 kl. 11:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. janúar 2015 kl. 11:42 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Loftur Guðmundsson bóndi og hreppstjóri í Svaðkoti fæddist 1735 og lést 4. ágúst 1803.
Loftur var skráður bóndi og ekkjumaður á Ofanleiti, 3. býli, 1801, en Svaðkot var eitt af hjáleigum þeirrar jarðar og komið á skrá við andlát hans.
Kona hans var Rannveig Ásmundsdóttir húsfreyja, f. 1740, d. 6. desember 1793 úr „innvortis meinsemd“.
Barna er ekki getið, enda byrjar skráning fæðinga 1786.


Heimildir