Litlibær

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. nóvember 2005 kl. 13:47 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. nóvember 2005 kl. 13:47 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Litlibær var byggt árið 1914 og stendur við Miðstræti 16. Var áður skráð við Strandveg 35. Var tómthúsalóð árið 1872. Frá Litlabæ er mikill fjöldi nafntogaðra Eyjamanna kominn. Þeir bræður, Ólafur bátasmiður, Kristinn á Miðhúsum og Valdimar, Ástgeirssynir, voru jafnan kenndir við æskuheimili sitt, Litlabæ. Og synir Ólafs eru einnig sumir landsþekktir, Sigurjón (Siggi í Bæ) kunnur trillusjómaður í Eyjum, Ástgeir (Ási í Bæ) og Kristinn, fréttaritari útvarpsins á Spáni.