Litlibær

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 09:26 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 09:26 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Litlibær

Húsið Litlibær var byggt árið 1904, endurbyggt 1960 og stendur við Miðstræti 16. Var áður skráð við Strandveg 35. Var tómthúsalóð árið 1872. Frá Litlabæ er mikill fjöldi nafntogaðra Eyjamanna kominn. Þeir bræður, Ólafur bátasmiður, Kristinn á Miðhúsum og Valdimar, Ástgeirssynir, voru jafnan kenndir við æskuheimili sitt, Litlabæ. Og synir Ólafs eru einnig sumir landsþekktir, Sigurjón (Siggi í Bæ) kunnur trillusjómaður í Eyjum, Ástgeir (Ási í Bæ) og Kristinn R. Ólafsson, fréttaritari útvarpsins á Spáni.

Árið 2006 bjó Helgi Guðbrandsson í húsinu.


Heimildir

  • Miðstræti. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.