Leifur Geir Hafsteinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2006 kl. 09:53 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2006 kl. 09:53 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Leifur Geir Hafsteinsson er fæddur 9. mars 1970. Foreldrar hans eru Hildur Oddgeirsdóttir, dóttir Oddgeirs Kristjánssonar, og Hafsteinn Guðfinnsson. Bróðir Leifs Geirs er Birgir Hrafn Hafsteinsson.

Leifur Geir lauk Bs námi í eðlisfræði og uppeldis- og kennslufræði og er með doktorsgráðu í vinnusálfræði. Leifur Geir hefur meðal annars kennt í Kvennaskólanum og í Háskólanum í Reykjavík.

Leifur Geir lék fótbolta með meistaraflokki ÍBV frá barnsaldri og til ársins 1997. Leifur Geir samdi stuðningsmannalag ÍBV í fótbolta, Komum fagnandi.