„Lárus Halldór Jakobsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 7: Lína 7:
{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Morgunblaðið. 22.október 1994. Minningargreinar um ''Lárus Halldór Jakobsson''.}}
* Morgunblaðið. 22.október 1994. Minningargreinar um ''Lárus Halldór Jakobsson''.}}
[[Flokkur:Fólk]]
 
[[Flokkur:Húsasmiðir]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]

Útgáfa síðunnar 26. júní 2007 kl. 10:19

Lárus Halldór Jakobsson fæddist í Vestmannaeyjum 21. júlí 1958. Hann lést á Landspítalanum 11. október 1994. Foreldrar hans voru Jakob Sigurjónsson vörubifreiðastjóri og Inga Lárusdóttir, starfsstúlka á Hraunbúðum. Lárus var ókvæntur og barnlaus.

Árið 1975 hóf Lárus nám í húsasmíði hjá Valgeiri Jónassyni húsasmíðameistara. Lauk hann sveinsprófi árið 1978.

Lárus starfaði við Fiskimjölsverksmiðju Einars Sigurðssonar. Árið 1986 varð hann framkvæmdastjóri og gjaldkeri knattspyrnuráðs ÍBV og starfaði þar nær óslitið til dauðadags. Var hann dáður innan knattspyrnuhreyfingarinnar í Vestmannaeyjum fyrir ómetanlegt starf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Í júlí 1994 keypti Lárus söluturninn Turninn, og hugðist reka hann.


Heimildir

  • Morgunblaðið. 22.október 1994. Minningargreinar um Lárus Halldór Jakobsson.