Kristmundur Árnason (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. október 2009 kl. 15:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. október 2009 kl. 15:43 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Kristmundur. Mynd úr Blik 1967.

Kristmundur Árnason fæddist að Vilborgarstöðum 2. júní 1864 og ólst þar upp hjá foreldrum sínum Árna Einarssonar hreppstjóra og Guðfinnu Jónsdóttur prests Austmanns. Hann vann hjá þeim öll uppvaxtarárin kauplaust og var þeim stoð og stytta eftir að eldri systkini hans voru flutt af heimilinu.

Vegna þessarar hjálpsemi ánafnaði faðir hans, Árni Einarsson, honum 5 hundruðin sín í jörðinni Hallgeirsey í Krosssókn í Landeyjum.

Kristmundur var barnakennari í Vestmannaeyjum 1882-1883 og síðar bókavörður en fór til Ameríku fyrir aldamót. Það dvaldist hann ýmist í Chicago, Los Angeles eða West- Selkirk, lengst af þó í Los Angeles. Þar kvæntist hann um aldamótin. Kona hans var heilsulítil og heimilisaðstæður erfiðar.

Kristmundur stundaði iðnaðarstörf vestan hafs.


Heimildir