Kristján Ingimundarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2013 kl. 18:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2013 kl. 18:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Brúðhjónin Kristján Ingimundarson og Sigurbjörg Sigurðardóttir.

Kristján Ingimundarson var fæddur 26. júní 1867 að Gjábakka-vestri í Eyjum. Hann lést 14. október 1952. Foreldrar Kristjáns voru Ingimundur hreppstjóri og bóndi Jónsson og kona hans Margrét Jónsdóttir.

Kona Kristjáns var Sigurbjörg Sigurðardóttir, fædd á Raufarfelli undir Eyjafjöllum 3. maí 1861 og dáin í Eyjum 10. mars 1931. Hjónin Kristján og Sigurbjörg bjuggu lengi í tómtúsinu Klöpp.

Íbúðarhúsið Klöpp.

Myndir



Heimildir