Kristinn Friðriksson (Látrum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júní 2006 kl. 15:18 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júní 2006 kl. 15:18 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Fullu nafni hét hann Brynjólfur Kristinn Friðriksson. Hann fæddist í Vestmannaeyjum 2. júlí 1911 og lést 1. apríl 1984. Í Eyjum bjuggu foreldrar hans, Sigurlína Brynjólfsdóttir og Friðrik Jónsson formaður. Voru þau kennd við Látrar, Vestmannabraut 44 en þar stóð heimili þeirra.

Um 1940 kaupir hann ásamt Ármanni bróður sínum vélbátinn Gunnar Hámundarson. Varð Ármann skipstjóri en Kristinn landformaður þar sem hann meðal annars beitti sjálfur. Þeir bræður nefndu bátinn Friðrik. Þremur árum seinna fóru þeir út í nýsmíði á öðrum bát sem þeir nefndu Friðrik Jónsson. Árið 1934 giftist hann Önnu Einarsdóttur frá London í Vestmannaeyjum. Hún lést árið 1979. Eignuðust þau þrjú börn, Ernu, Einar Friðrik og Sigríði. Sama ári og Kristinn og Anna kvæntust byggði Kristinn veglegt hús við Urðaveg 42 í Vestmannaeyjum. Það hús fór undir hraun í Heimaeyjargosinu.


Heimildir

  • Einar J. Gíslason: Minningargrein um Kristinn Friðriksson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1985.