Kristín Stefánsdóttir (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. desember 2012 kl. 12:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. desember 2012 kl. 12:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Kristín Stefánsdóttir''' húsfreyja í Háagarði, f. 1779, d. 14. júlí 1869.<br> Foreldrar hennar voru Stefán bóndi á Bjalla á Landi, f. 1742, d. 8. febrúar...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Stefánsdóttir húsfreyja í Háagarði, f. 1779, d. 14. júlí 1869.
Foreldrar hennar voru Stefán bóndi á Bjalla á Landi, f. 1742, d. 8. febrúar 1837, Filippusson prests í Kálfholti í Holtum, f. 1693, d. 1779, Gunnarssonar og seinni konu séra Filippusar, Vilborgar, d. 1774, Þórðar lögréttumanns í Háfi Þórðarsonar.
Móðir Kristínar og kona Stefáns var Helga húsfreyja, f. 1747, d. 10. júlí 1812, Gísladóttir bónda í Hjallanesi, f. 1693, Tómassonar og seinni konu Gísla, Ingiríðar Guðmundsdóttur.
Kristín var síðari kona Jóns Jónssonar bónda í Háagarði. Þau bjuggu þar 1816-1835. Fyrri kona hans var Valgerður Guðbrandsdóttir.
Þau Jón voru barnlaus.


Heimildir

  • Landmannabók – Landsveit. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra, Hellu 2003.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslezka bókmenntafélag 1948-1976.
  • Manntöl.