Kristín Grímsdóttir (Ofanleiti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. janúar 2015 kl. 14:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. janúar 2015 kl. 14:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Kristín Grímsdóttir''' húsfreyja og prestkona að Ofanleiti fæddist 1732 og lést 19. nóvember 1807.<br> Foreldrar hennar voru Grímur Grímsson bóndi á Stóru-Giljá ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Grímsdóttir húsfreyja og prestkona að Ofanleiti fæddist 1732 og lést 19. nóvember 1807.
Foreldrar hennar voru Grímur Grímsson bóndi á Stóru-Giljá í A-Húnavatnssýslu, lögréttumaður, lögsagnari og sýslumaður um skeið, f. um 1699, og kona hans Málfríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 1698.

Kristín og Ari voru presthjón á Stað í Grindavík 1774-1778, í Selvogsþingum 1788-1789 og að lokum í Eyjum frá 1789.
Kristín lést 1807 og Ari hálfu öðru ári síðar 1809.

Maður Kristínar, (30. júní 1774), var sr. Ari Guðlaugsson prestur að Ofanleiti, f. 1740, d. 17. júlí 1809.
Börn hér:
1. Jón Arason prestur á Ofanleiti, f. 1780, d. 10. september 1810.
2. Halldóra Aradóttir húsfreyja, f. um 1775, d. 6. september 1800.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Lögréttumannatal. Sögurit. Einar Bjarnason. Sögufélag gaf út. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1952-1955.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.