„Kraftaverkið Guðlaugur Friðþórsson“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
Smáleiðrétting
Ekkert breytingarágrip
(Smáleiðrétting)
Lína 3: Lína 3:
Vélbáturinn [[Hellisey VE-503]] fórst að kvöldi sunnudagsins 11. mars 1984 um kl. 23.00. Með Hellisey VE fórust [[Hjörtur R. Jónsson]] skipstjóri, 25 ára, [[Pétur Sigurðsson]], 1. vélstjóri, 21 árs, [[Engilbert Eiðsson]], 2. vélstjóri, 19 ára, og [[Valur Smári Geirsson]] matsveinn, 26 ára. Guðlaugur, stýrimaður, sem þá var 22 ára, komst einn lífs af.

Báturinn var að togveiðum um 5 km austur af [[Stórhöfði|Stórhöfða]] á [[Heimaey]] þegar trollið festist í botni. Það var ágætisveður, norðan andvari, heiðskírt og tveggja gráða frost. Guðlaugur hafði verið sofandi neðan þilja þegar Valgeir Smári, matsveinn, vakti hann og sagði að trollið væri fast í botni. Þegar Guðlaugur kom upp á þilfar stóð strekktur togvírinn beint niður svo sjór rann inn fyrir lunninguna. Með því að slaka á vírnum og keyra á festuna lagðist báturinn aðeins. Að sögn Guðlaugs var líkt og kvika kæmi undir bátinn og hann lagðist á möstrin. Skyndilega hvolfdi bátnum á nokkrum sekúndum. Allir skipverjar lentu í sjónum, en Guðlaugi tókst að komst á kjöl bátsins ásamt þeim Hirti og Pétri.
Báturinn var að togveiðum um 5 km austur af [[Stórhöfði|Stórhöfða]] á [[Heimaey]] þegar trollið festist í botni. Það var ágætisveður, norðan andvari, heiðskírt og tveggja gráða frost. Guðlaugur hafði verið sofandi neðan þilja þegar Valur Smári, matsveinn, vakti hann og sagði að trollið væri fast í botni. Þegar Guðlaugur kom upp á þilfar stóð strekktur togvírinn beint niður svo sjór rann inn fyrir lunninguna. Með því að slaka á vírnum og keyra á festuna lagðist báturinn aðeins. Að sögn Guðlaugs var líkt og kvika kæmi undir bátinn og hann lagðist á möstrin. Skyndilega hvolfdi bátnum á nokkrum sekúndum. Allir skipverjar lentu í sjónum, en Guðlaugi tókst að komst á kjöl bátsins ásamt þeim Hirti og Pétri.

Reyndu þeir að ná til gúmbjörgunarbáts sem var á 6 metra dýpi, en ógjörningur reyndist að ná í bátinn. Skipið var ekki búið sjálfvirkum sleppibúnaði, en til stóð að setja þannig búnað í skipið um næstu páska. „Við ákváðum þarna saman þrír á kili að ef svo ótrúlega vildi til að einhver okkar lifði af, þá skyldum við láta það koma fram að það eina sem hefði getað bjargað okkur væri sjálfvirkur sjósleppibúnaður Sigmunds,“ segir Guðlaugur.

Lína 17: Lína 17:
:Hjörtur skipstjóri sagði þá að við skyldum fara með bænina Faðir vor og við gerðum það þrír saman og reyndum að hughreysta hver annan. Hirti var mjög kalt, því hann hafði misst skó og sokka af sér, og ég lánaði honum stígvélin mín, því ég var sjálfur í ullarsokkum. Það var kalt þarna á kili. [...]

:Það hafði ekki hvarflað að mér að reyna að synda til lands, en þegar Hjörtur skipstjóri sagðist ætla að freista þess, sagðist ég einnig ætla að gera það. Skyndilega datt báturinn undan okkur og við vorum aftur í sjónum. Við höfðum ákveðið að reyna sund til lands án þess að fylgjast að og án þess að hjálpa hvor öðrum, töldum það vonlaust. Við sáum vitaljósið á Stórhöfða og tókum þrír stefnuna þangað. Fljótlega vorum við Hjörtur tveir einir og kölluðumst á, en síðan hætti ég að fá svar og hætti þá að kalla.  
:Það hafði ekki hvarflað að mér að reyna að synda til lands, en þegar Hjörtur skipstjóri sagðist ætla að freista þess, sagðist ég einnig ætla að gera það. Skyndilega datt báturinn undan okkur og við vorum aftur í sjónum. Við höfðum ákveðið að reyna sund til lands án þess að fylgjast að og án þess að hjálpa hver öðrum, töldum það vonlaust. Við sáum vitaljósið á Stórhöfða og tókum þrír stefnuna þangað. Fljótlega vorum við Hjörtur tveir einir og kölluðumst á, en síðan hætti ég að fá svar og hætti þá að kalla.  

:Ég hugsaði svo margt á sundinu til lands, hvað maður hefur gert og hvað maður átti eftir að gera. Ég hef til dæmis verið að velta því fyrir mér með félögum mínum að skreppa til New York og við höfum stundum haft á orði að við gætum ekki verið þekktir fyrir annað en að fara til Nýju Jórvíkur áður en við dræpumst og þetta fór ég að hugsa um á leiðinni til Heimaeyjar, fannst alveg ótækt að geta ekki látið þann draum rætast. Ég fór líka að hugsa um það að ég skulda hér og þar, smávegis, eins og gengur, og mér þótti mikið slæmt að stefna í dauðann án þess að geta gert upp. Ég á mótorhjól og er nýbúinn að panta í það frá Bretlandi og ég var til dæmis að velta því fyrir mér hvort karlinn sem ég pantaði hjá yrði nú ekki snarvitlaus ef pöntunin yrði ekki sótt. Mér fannst líka óþægilegt að hugsa til þess að þeir sem ég skuldaði kynnu ekki við að rukka foreldra mína. Þannig var ég allan tímann að velta hlutunum fyrir mér, reyna að halda hugsuninni gangandi um leið og það tosaðist á sundinu.

Lína 27: Lína 27:
:Þegar ég hafði synt um mílu sá ég bát koma siglandi og synti allt hvað af tók og var þá ekkert að hugsa um að halda höfðinu upp úr. Þegar báturinn fór framhjá mér voru um 100 metrar í hann og ég öskraði af öllum lífs og sálar kröftum, veifaði og buslaði, en báturinn hvarf án þess að nokkur tæki eftir mér. Þá greip mig svolítið vonleysi, þegar ég sá á eftir bátnum, en svo sá ég að úr því að hjálpin bærist ekki yrði ég að bjarga mér sjálfur og við það styrktist ég aftur og tók stefnuna á Heimaey sem grillti í langt fjarri í myrkrinu. Þá fór ég úr sjógallanum, en synti spöl án þess að taka eftir að buxurnar þvældust á fótunum. Stundum þegar ég synti baksund, bögglaði ég saman fingurna og blés í þá.

:Á landleiðinni sá ég líka alltaf ljóskastarana austur á nýja Hrauni, og stefndi á þá og Stórhöfðavitann. Ég sá einnig [[Álsey]] undan Stórhöfða og [[Elliðaey]] austan við [[Bjarnarey]], en þegar fór að saxast á Álsey sá ég að ég var að mjakast og það hleypti í mig dug og von. Þegar Elliðaey var horfin undir Bjarnarey taldi ég eina mílu eftir í land. [...]
:Á landleiðinni sá ég líka alltaf ljóskastarana austur á Nýja Hrauni, og stefndi á þá og Stórhöfðavitann. Ég sá einnig [[Álsey]] undan Stórhöfða og [[Elliðaey]] austan við [[Bjarnarey]], en þegar fór að saxast á Álsey sá ég að ég var að mjakast og það hleypti í mig dug og von. Þegar Elliðaey var horfin undir Bjarnarey taldi ég eina mílu eftir í land. [...]

:Það undarlega var að ég var aldrei hræddur þessa nótt. Ég hafði á tilfinningunni að ég myndi deyja. Ég fór tvisvar með Faðir vor á leiðinni í land, en það var satt að segja ansi fjölbreytt sem ég reyndi að gera til þess að halda hugsuninni gangandi. Ég talaði við múkkann og bað fyrir skilaboð til lands, bað hann að láta vita af mér. Múkkinn hefur alltaf verið kallaður vinur sjómannsins.

1.401

breyting

Leiðsagnarval