„Kraftaverkið Guðlaugur Friðþórsson“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(3 millibreytingar ekki sýndar frá 2 notendum)
Lína 1: Lína 1:
'''''Eftirfarandi viðtal tók [[Árni Johnsen]], þá blaðamaður á Morgunblaðinu, við Guðlaug skömmu eftir að sá síðarnefndi vann hið einstaka afrek. Viðtalið birtist í Morgunblaðinu á sínum tíma og hér á eftir fara stiklur úr viðtalinu.'''''
'''''Eftirfarandi viðtal tók [[Árni Johnsen]], þá blaðamaður á Morgunblaðinu, við [[Guðlaugur Friðþórsson|Guðlaug]] skömmu eftir að sá síðarnefndi vann hið einstaka afrek. Viðtalið birtist í Morgunblaðinu 16. mars 1984, örfáum dögum eftir slysið, og hér á eftir fara stiklur úr viðtalinu.'''''

-------
-------
[[Mynd:Minnisvarði Hellisey.jpg|thumb|300px|Vestmannaeyjabær lét reisa þennan minnisvarða á sjómannadaginn 1996. Á honum stendur: ''Helliseyjarslysið. Að kvöldi 11. mars 1984 sökk Hellisey VE 503 þrjár sjómílur í austur frá [[Stórhöfði|Stórhöfða]]. Með bátnum fórust fjórir ungir sjómenn. Einn skipverji, Guðlaugur Friðþórsson, þá 22 ára, vann það ótrúlega þrekvirki að synda um 6 kílómetra leið í ísköldum sjónum. Hann náði á land hér við ströndina eftir 5 klukkustunda sund og þurfti síðan að ganga berfættur yfir hraunið áður en hann náði til byggða.'']]  
[[Mynd:Guðlaugur Friðþórsson1.jpg|thumb|250px|Guðlaugur rúmu ári eftir slysið.]]
[[Mynd:Minnisvarði Hellisey.jpg|thumb|250px|Vestmannaeyjabær lét reisa þennan minnisvarða á sjómannadaginn 1996. Á honum stendur: ''Helliseyjarslysið. Að kvöldi 11. mars 1984 sökk Hellisey VE 503 þrjár sjómílur í austur frá [[Stórhöfði|Stórhöfða]]. Með bátnum fórust fjórir ungir sjómenn. Einn skipverji, Guðlaugur Friðþórsson, þá 22 ára, vann það ótrúlega þrekvirki að synda um 6 kílómetra leið í ísköldum sjónum. Hann náði á land hér við ströndina eftir 5 klukkustunda sund og þurfti síðan að ganga berfættur yfir hraunið áður en hann náði til byggða.'']]  

:Við töluðum mikið saman á kili og ég sagði si svona: ''„Jæja, þetta þurfti þá að enda svona. Maður heldur alltaf að einhver annar lendi í því, einhver annar maður, einhver annar bátur. Svona er það líka í landi, en svo allt í einu er stundin runnin upp.“'' Við sátum frammi á kili og var skipið þá mikið til komið í kaf að aftan. Mér verður þá að orði: ''„Ef Guð er til ætti hann að hjálpa manni, nú þarf maður á því að halda.“'' Undarlegt er þetta, og oft hefur maður efast um það að Guð væri til og jafnvel hæðst að því á ákveðnum aldri, eins og gengur.

Lína 27: Lína 28:

:Eftir nokkrar vangaveltur í brimgarðinum við hamra Heimaeyjar synti ég út úr honum aftur en þá ákvað ég að láta kylfu ráða kasti úr því sem komið var og forlögin höfðu verið mér svona hliðholl. Ég fór því á baksund og synti aftur inn í brimgarðinn, á fullri ferð, án þess að vita hvort framundan væri sandfjara, grýtt urð eða hamraveggur. Þegar ég hafði öslað brimlöðrið á bakinu og taldi mig vera nálægt landi, því brimniðurinn segir manni nokk hve nærri landi maður er, þá sneri ég mér á bringuna og var þá við stóran stein sem var svona 5-10 metra frá stórgrýttri fjörunni. Ég náði taki á klettinum og hélt mér þar meðan fjaraði út, en næsta alda henti mér yfir klettinn og skolaði mér í urðina. Þar komst ég upp á syllu, sem ég skreið upp á, því ég gat ekki staðið. Ég hugsaði með mér að ég væri með sjóriðu og fannst það skammarlegt af sjómanni að vera. Ég sat í nokkrar mínútur á syllunni og skorðaði mig af, því það flæddi upp á sylluna í fyllingum. Ég gerði mér ekki grein fyrir því að lappirnar voru búnar, en síðan komst ég, milli laga, fyrir bergsnös í fjörunni og upp á þurrt, loksins.

:Þá fór ég að velta því fyrir mér hvort ég ætti að leggjast niður stundarkorn, en ég var hræddur um að það myndi alveg slokkna á mér ef ég sofnaði þarna, svo ég ákvað að halda áfram eftir stutta stund. Ég skreið fyrst, reyndi síðan að labba, en skjögraði til allra átta og gat satt að segja ekki staðið á fótunum af neinu viti. Ég reyndi að festa spýtu úr fjörunni undir iljarnar á mér, en það gekk ekki. Skæðin tolldu ekki. Ég taldi mér borgið þegar ég var kominn á land, en samt var það ef til vill erfiðara að fara landleiðina um hraunið en sjóleiðina, berfættur og svo dofinn að maður fann ekki fyrir sjálfum sér þótt maður klipi sig.

:Líklega hef ég verið um það bil 5 klukkutíma á sundi eftir eina klukkustund á kili og nær þrjár klukkustundir að komast í bæinn. Á miðri leið, austur á Haugum, rakst ég á baðkar, sem notað er til að brynna ám. Með bylmingshöggum, svo hönd mín bólgnaði, náði ég að brjóta þumlungsþykkan ís ofan á vatninu í baðkarinu og gatið sem myndaðist passaði nákvæmlega til þess að ég gæti stungið hausnum ofan í vatnið og svolgrað.
:Líklega hef ég verið um það bil 5 klukkutíma á sundi eftir eina klukkustund á kili og nær þrjár klukkustundir að komast í bæinn. Á miðri leið, austur á Haugum, rakst ég á baðkar, sem notað er til að brynna ám. Með bylmingshöggum, svo hönd mín bólgnaði, náði ég að brjóta þumlungsþykkan ís ofan á vatninu í baðkarinu og gatið sem myndaðist passaði nákvæmlega til þess að ég gæti stungið hausnum ofan í vatnið og svolgrað. Það hressti mig mikið, en samt var ég svo móður og þungur á göngunni að ég geri mér varla grein fyrir hvernig ég liðaðist upp hlíðina og yfir hraunið. Þegar ég kom að [[Helgafell]]sgryfjunni, að lítilli brekku á veginum, var ég að hugsa um að fara heldur suður í Flugstöð í stað þess að leggja í brekkuna, svo miklaði ég hana fyrir mér, en ég lagði þó í hana og þegar ég reyndi að labba utan vegar í grasinu gat ég það ekki vegna þess að ég hélt engu jafnvægi í annars tiltölulega sléttu graslendi.
 
:Þegar ég komst upp á milli Fellanna og ljósin í bænum blöstu við, leit ég einhverja stórkostlegustu sýn í lífi mínu og mér óx ásmegin og greikkaði sporið að fyrsta húsinu sem ljós var í. Þar barði ég dyra og bað um hjálp, en síðar rennur flest út í móðu, sem síðar gerðist á leiðinni til sjúkrahússins...
 
:Ég hét því á meðan á þessu stóð, fyrst á kili, að fara aldrei til sjós oftar, ef mér ætti að verða lífs auðið. Svo ítrekaði ég þetta heit á sundinu, en eitthvað er ég nú farinn að guggna á því. Maður sér bara til úr því að manni er ætlað að lifa áfram. En ég hef nú fengið það sem var efst á óskalistanum á sundinu, heitt bað og heitt rúm. Umfram allt vil ég þakka almættinu í auðmýkt þótt það sé nú ekki manns sterkasta hlið. 

{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Lífins melódí, Árni Johnsen, 2004, Vaka-Helgafell
* Árni Johnsen. „Lífins melódí“. Reykjavík: Vaka-Helgafell, 2004.
* ________. Stjörnurnar hurfu í skýin - en stjarnan mín hvarf aldrei. Morgunblaðið, 16. mars 71. árg. 1984. 
* „Ljósin í Eyjum voru honum leiðarljós“, Morgunblaðið, 12. mars 2004.
* „Ljósin í Eyjum voru honum leiðarljós“, Morgunblaðið, 12. mars 2004.
}}
}}

<meta:creator>Skapti Örn Ólafsson</meta:creator>
<meta:creator>Skapti Örn Ólafsson</meta:creator>
[[Flokkur:Sjórinn]]
[[Flokkur:Viðtöl]]
[[Flokkur:Viðtöl]]

Leiðsagnarval