Kolbeinn Ófeigsson (Landlyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. mars 2015 kl. 17:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. mars 2015 kl. 17:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Kolbeinn Ófeigsson (Landlyst)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Kolbeinn Ófeigsson trésmíðalærlingur og sjómaður í Landlyst fæddist 28. janúar 1827 í Bjarnanessókn í A-Skaft. og drukknaði 6. mars 1852.

Kolbeinn var niðursetningur á Fornustekkjum í Hornafirði 1835, léttadrengur þar 1840, vinnumaður á Hofi í Álftafirði, S-Múl. 1845, á Kálfafelli í Fljótshverfi í V-Skaft. 1850.
Hann var smíðalærlingur í Landlyst er hann drukknaði með Þórarni Hafliðasyni mormónapresti og tveim öðrum í veiðiför 1852.
Þeir sem fórust voru:
1. Þórarinn Hafliðason formaður, f. 1. október 1825.
2. Ingimundur Einarsson fyrirvinna í Ömpuhjalli.
3. Ísleifur Pálsson trésmíðanemi í Landlyst, f. 16. apríl 1829.
4. Kolbeinn Ófeigsson.
Kolbeinn var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir