Klemensarkirkja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2006 kl. 08:57 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2006 kl. 08:57 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Fyrsta kirkjan sem var byggð á Íslandi var Klemensarkirkja. Klemens er nafn á kaþólskum dýrlingi sem m.a. var verndardýrlingur sjófarenda. Hún er talin hafa verið byggð undir Heimakletti á Hörgaeyri. Ekki er vitað um nákvæma staðsetningu kirkjunnar og sumir fræðimenn telja að hún hafi ekki verið reist á Hörgaeyri heldur sunnan við innsigliguna. Ljóst er að land á þessum slóðum hefur verið meira en nú og því margt komið undir sjó sem hefur staðið áður. Vestan við Heimaklett hafa fundist mannabein oftar en einu sinni og gæti þar hafa verið skipulagður kirkjugarður. Kirkjan stóð í kringum 300 ár, þangað til sjávarágangur hefur haft yfirhöndina.

Sjá einnig

  • Stafkirkjan. Byggð hefur verið endurmynd kirkjunnar og greinin um hana er ítarleg.



Heimildir