Kirkjufell

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. nóvember 2005 kl. 11:24 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. nóvember 2005 kl. 11:24 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Kirkjufell stendur við Strembugötu 10. Nafnið var áður á braggahúsnæði ofan við Löngulág en færðist yfir á húsið þegar bragginn var rifinn. Húsið var reist árið 1955 af Valtý Brandssyni sem einmitt bjó í áðurnefndu braggahúsnæði. Voru Valtýr og fjölskylda hans reyndar oft kennd við braggann. Afkomendur Valtýs eru fjölmargir í Eyjum.