Kirkjufell

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2006 kl. 11:44 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2006 kl. 11:44 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Kirkjufell stendur við Strembugötu 10. Nafnið var áður á braggahúsnæði ofan við Löngulág en færðist yfir á húsið þegar bragginn var rifinn. Húsið var reist árið 1955 af Valtý Brandssyni sem einmitt bjó í áðurnefndu braggahúsnæði. Voru Valtýr og fjölskylda hans reyndar oft kennd við braggann. Afkomendur Valtýs eru fjölmargir í Eyjum.

Árið 2006 bjuggu í húsinu Guðrún Lilja Ólafsdóttir, Halldór Jón Sævarsson og þeirra börn.