„Kirkjubær“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
6.611 bætum bætt við ,  25. nóvember 2016
ekkert breytingarágrip
(Bætt inn teikningu)
Ekkert breytingarágrip
 
(26 millibreytingar ekki sýndar frá 6 notendum)
The content of the old revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Kirkjubæir.jpg|thumb|250px|Kirkjubær]]
'''Kirkjubær''' var einn sögufrægasti staður Vestmannaeyja. Bæjarlandið samanstóð af átta bæjum í manntali sem tekið var árið 1892, en þeir stóðu nokkuð austan við byggðakjarna Heimaeyjar, en voru annað tveggja bæjarhverfa Vestmannaeyja ásamt [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]]. Bæirnir drógu nafn sitt af því að þar stóð [[kirkjumál|kirkja]], sem reist var 1269 og stóð til 1573. Þar var prestssetur fram til ársins 1837.
[[Mynd:Kirkjubær13.jpg|thumb|250px|Oddsstaðir vestri og eystri. Það sér í Tún fjærst til hægri. Kirkjubær í eimyrju í baksýn.]]
[[Mynd:Kirkjubær.JPG|thumb|250px|Kirkjubær. Kirkjubæjarþorpið ber í Ystaklett.]]


Kirkjubær og öll aðliggjandi lönd fóru undir hraun í [[Heimaeyjargosið|jarðeldunum 1973]], en gosið hófst í landi Kirkjubæjar.
== Fylgilönd og eignir ==
[[Mynd:1945.2.jpg|thumb|200px|Kirkjubær.]]
[[Mynd:1945.4.jpg|thumb|200px|Oddsstaðir vestri og eystri fyrir miðri mynd. Fjærst til hægri er Vallartún, nær þar er Tún.]]
Kirkjubær var að fornu talinn átta einbýlisjarðir:
#[[Hlaðbær|Norður-Hlaðbær]] (Norðurbær)
#[[Hlaðbær|Austasti-Hlaðbær]] (Kirkjubær, Suðurbær)
#[[Hlaðbær|Mið-Hlaðbær]] (Ólafsbær)
#[[Kirkjuból|Vestasti-Hlaðbær]] (Kirkjuból)
#[[Vestri-Staðarbær]] (Staðarbær I)
#[[Eystri-Staðarbær]] (Staðarbær II)
#Bænhús
#[[Tún (hús)|Tún]]
Að einhverju leyti eru þessi nöfn þó rugluð, þar sem bæirnir á Vilborgarstöðum báru sumir hverjir sömu nöfn, og voru líklega sömu bæirnir.
Kirkjubæjarbændur áttu nytjalönd í [[Geldungur|Geldungi]], þar sem þeir máttu veiða [[Fýll|fýl]] og [[Súla|súlu]]; [[Brandur|Brandi]], til [[Lundi|lundaveiði]], [[Fýll|fýlaveiði]], [[Súla|súlnaveiði]] og eggjatöku, ásamt því sem þeir máttu hafa þar þrettán sauði á beit. Á haustin voru 26 lömb sett þangað í vetrarbeit, en mjög gott þótti að beita í Brandinum. Ennfremur höfðu Kirkjubæjarbændur rétt á 25 sauða beit til móts við [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstaðabændur]] í [[Suðurey]], og allar nytjar í [[Flugur|Flugum]] og í [[Ystiklettur|Ystakletti]] ([[lundi|lundaveiðar]], [[eggjataka]], beit).
=== Örnefni ===
[[Mynd:Hlaðinu_við_kirkjubæ.jpg|thumb|250px|Á hlaðinu við Kirkjubæ]]
[[Mynd:1945.3.jpg|thumb|250px|Áburði dreift á Tobbatún 1945]]
;Dagteigur: Flöt skammt fyrir vestan [[Móhús]] þar sem fimm hestum var beitt að öllu jöfnu.
;Stórihóll: Stór brattur hóll sunnan Kirkjubæja, sem stóð við túngarðana. Hóllinn var mjög vinsæll meðal barna, enda gott að bruna niður Stórahól þegar áfreða lá við jörðu. Gjarnan var þessi hóll kallaður '''Tobbahóll''' og '''Tobbatún''' voru túnin sunnan hólsins, en [[Þorbjörn Guðjónsson]] var eigandi þeirra lengi vel, og börn kunnu vel við hann.
;Runkatjörn: Hlaðinn brunnur í kvos neðst í túni [[Vestri-Staðarbær|Vestri-Staðarbæjar]]. Runkatjörn var lengi vatnsból fyrir skepnur, en tjörnin var kennd við Runólf [[Mormónar|mormóna]]. Tveir aðrir brunnar stóðu við Kirkjubæ, - annar norður af Eystri-Staðarbæ, hinn vestan við Suðurbæinn.
;Vertshústún: Tún Bænhúsjarðar, næst bæ Þorbjörns. Það er kennt við Johnsen- fjölskylduna sem bjó í [[Frydendal]], sem einnig var kallað [[Vertshúsið]], en sú fjölskylda notaði þessa jörð.
;Þórarinsútseta: Austur af Einlandi, beint suður af túngörðum [[Eystri-Oddsstaðir|Eystri-Oddsstaða]], vestan við Stórahól. Kennd við Þórarin Árnason, sem bjó á Oddsstöðum.
;Þórarinsgarður: Kálgarður neðan við Þórarinsútsetu.
;Hulduhóll: Hóll norðan við Tún.
;Móhúsaflöt: Slétt flöt suður af Móhúsum. Þar voru frjálsar íþróttir gjarnan stundaðar, s.s. stangarstökk, langstökk og hástökk. [[Torfi Bryngeirsson]] frá [[Búastaðir|Búastöðum]] setti þar sitt fyrsta Íslandsmet.
;Elsulág: Lægð í túni Norðurbæjar, rétt norðan við Staðarbæina.
;Bílustaðir: Ekki er með öllu víst hvar þeir voru, en Mikjálsklaustrið í Björgvin hefur hlotið þá jörð að gjöf á sínum tíma.
=== Kirkjan ===
[[Mynd:129430353.jpg|thumb|250px|Oddsstaðir og Kirkjubær. Einland til hægri.]]
Kirkjan á Kirkjubæ var í eigu Skálholtskirkju fyrst um sinn, en Mikjálsklaustur í Björgvin í Noregi fékk Kirkjubæjarkirkju að gjöf frá Árna Þorlákssyni Skálholtsbiskupi árið 1280. Á þessum tíma voru í Vestmannaeyjum tvær kirkjur, en hin var [[Klemensarkirkja]] sem stóð á [[Hörgaeyri]]. Kirkjubæjarkirkja hét réttu nafni [[Péturskirkja]], og var hún helguð Símoni Pétri, lærisveini Jesú, sem var fiskimaður og verndardýrlingur fiskimanna. Í seinni tíð hlaut kirkjan nafnið [[Ofanleitiskirkja]].
Fyrsta kirkjan að [[Lönd]]um, nefnd [[Landakirkja]], var byggð í lúterskum sið árið 1573. Þá urðu guðshúsin sem stóðu á [[Ofanleiti]] og á Kirkjubæ að bænhúsum, og Landakirkja var eina kirkjan í Vestmannaeyjum.
=== Íbúar ===
[[Mynd:1943.1.jpg|thumb|250px|Sunnudagsganga við Helgafell árið 1943]]
Í manntalinu 1816 kom fram að 99 af þeim 212 íbúum Vestmannaeyja þá áttu heima á Kirkjubæ.
== Tyrkjaránið ==
Í [[Tyrkjaránið|Tyrkjaráninu]] er það frægt að séra [[Jón Þorsteinsson (prestur)|Jón Þorsteinsson]], prestur á Kirkjubæ, faldi sig í [[Rauðahellir|Rauðahelli]] í [[Urðir|Urðum]], ásamt skyldfólki sínu og fleirum. Jón var höggvinn, og fólk hans herleitt til Algeirsborgar.
== Heimaeyjargosið ==
[[Mynd:Kirkjubær12.jpg|thumb|250px|Fyrstu dagar eldgossins]]
Aðfaranótt 23. janúar 1973 opnaðist 2,3 km löng sprunga á Heimaey, og gekk hún frá norðri til suðurs í gegnum land Kirkjubæjar. Sprungan opnaðist rétt austan við Kirkjubæ, og í upphafi gossins barst lögreglunni tilkynning frá bónda á Kirkjubæ um eldsvoða, sem síðar reyndist vera af völdum gossins.
== Myndasafn ==
<gallery>
Mynd:Kirkjubaer tunin hulda i vatnsdal.jpg
Mynd:Kirkjubaer tunin 21 jan 1973.jpg
Mynd:Kirkjubaer tobbatun 21 01 1973.jpg
Mynd:Kirkjubaer.jpg
Mynd:Kirkjubaer kyrnar hans tobba.jpg
Mynd:Kirkjubær2.jpg
Mynd:Kirkjubær1.jpg
Mynd:Kirkjubærb.jpg
Mynd:Kirkjubær3.jpg
Mynd:Kirkjubær4.jpg
Mynd:Kirkjubær5.jpg
Mynd:Kirkjubær6.jpg
</gallery>
{{Heimildir|
* [[Guðjón Ármann Eyjólfsson]]. ''Vestmannaeyjar - byggð og eldgos''. Reykjavík: Ísafoldaprentsmiðja, 1973.
}}
[[Flokkur: Horfinn heimur]]
[[Flokkur:Hús sem fóru undir hraun]]
[[Flokkur:Kirkjubær]]
{{Byggðin undir hrauninu}}

Leiðsagnarval