Kaupangur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2007 kl. 08:33 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2007 kl. 08:33 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Kaupangur.

Húsið Kaupangur stóð við Vestmannabraut 31, á horni Vestmannabrautar og Hilmisgötu og var húsið byggt 1920. Magnús Th. Þórðarson, kaupmaður (Mangi Th.),byggði og rak verslun í húsinu en það þjónaði síðan ýmsum hlutverkum gegnum tíðina. Þar voru m.a. tannlæknastofa og lögfræðistofa en lengst af var þar rakarastofa þeirra Einars Þorsteinssonar og Ragnars Guðmundssonar. Kaupangur var rifinn skömmu eftir gos.

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu


Heimildir

  • Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.