Karl Guðjónsson (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. nóvember 2005 kl. 18:24 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. nóvember 2005 kl. 18:24 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Karl Guðjónsson, kennari og alþingismaður.

Karl Guðjónsson, kennari, var alþingismaður Vestmannaeyja í fjöldamörg ár. Hann var landskjörinn þingmaður frá 1953 til 1959. Var kosinnn af lista Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi árið 1959 til 1971. Karl var landskjörinn varaþingmaður nóv-des 1965.

Karl var fæddur í Hlíð í Vestmannaeyjum og lést þann 7. mars 1973 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Guðjón Einarsson (f. 18. okt 1886, d. 11. des 1966) fiskimatsmaður í Vestmannaeyjum og Guðfinna Jónsdóttir (f. 1. september, d 12. apríl 1957. Karl kvæntist þann 1. nóvember 1942 Arnþrúði (f 1. apríl 1918) dóttur Björns Sigurðssonar, bónda og trésmiðs í Grjótnesi á Sléttu, og Vilborgar Sigríðar Guðmundsdóttur.

Karl tók kennarapróf í Reykjavík 1938. Hann stundaði framhaldsnám við Kennaraháskólann í Kaupmannahöfn á árunum 1964-1965. Hann var ráðinn sem kennari við barnaskólann í Vestmannaeyjum frá 1938-1968, og síðan við Vogaskóla í Reykjavík 1963-1966.

Hann var fræðslufulltrúi og fræðslustjóri í Kópavogi 1966 til æviloka. Karl var einnig formaður Sambands íslenskra lúðrasveita(SÍL) árin 1964-1965. Hann sat í bankaráði Framkvæmdabankans 1957 til 1966 og í úthlutunarnefnd atvinnuaukningarfjár 1959-1960. Árið 1955 var hann kosinn í orkunefnd og árið 1956 í milliþinganefnd í samgöngumálum. Var svo loks kosinn í Norðurlandaráð árið 1968.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.