„Karl Björnsson (bakarameistari)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Karl Björnsson.jpg|thumb|220px|Karl]]
'''Karl Óskar Jón Björnsson''' fæddist 2. október 1899 og 31. janúar 1954. Hann var bakari í [[Víðidalur|Víðidal]]. Foreldrar hans voru Sigríður Jónsdóttir og Björn Jónsson bakarameistari í Nikulásarkoti við Klapparstíg í Reykjavík.  
'''Karl Óskar Jón Björnsson''' fæddist 2. október 1899 og 31. janúar 1954. Hann var bakari í [[Víðidalur|Víðidal]]. Foreldrar hans voru Sigríður Jónsdóttir og Björn Jónsson bakarameistari í Nikulásarkoti við Klapparstíg í Reykjavík.  



Útgáfa síðunnar 3. ágúst 2012 kl. 18:08

Karl

Karl Óskar Jón Björnsson fæddist 2. október 1899 og 31. janúar 1954. Hann var bakari í Víðidal. Foreldrar hans voru Sigríður Jónsdóttir og Björn Jónsson bakarameistari í Nikulásarkoti við Klapparstíg í Reykjavík.

Karl byrjaði ungur að hjálpa föður sínum í bakaríinu og fór síðan til framhaldhaldsnáms til Kaupmannahafnar í eitt ár og lagði þá stund á kökugerð sérstaklega. Hann fór utan tvívegis til að kynna sér það sem komið hafði nýtt í faginu, enda var hann vel fróður um sitt fag. Sjálfstætt starfaði hann í Reykjavík, Keflavík og síðast í Vestmannaeyjum.

Karl var listrænn. Hann var vel hagmæltur, skrifaði bæði gott mál og ágæta rithönd, hann var bókamaður mikill og átti bókakost ágætan. Sjálfur gaf hann út þrjár bækur; Brauð og kökur, Sultu- og Coktail bókin og síðast Sælgæti, sultur og saftir. Íþróttamaður var hann ágætur og varð hann þekktastur sem sundmaður. Hann varð að minnsta kosti einu sinni sundkappi ársins í Vestmannaeyjum.

Eiginkona hans var Guðrún Scheving. Þau opinberuðu trúlofun sína 12. október 1935. Þau eignuðust sex börn: Helga Scheving, Björn Ívar, stúlkubarn sem fæddist 1946 og lést aðeins sólarhringsgömul, Sigurð Örn, Hrafn, og Sesselju Karitas.

Myndir


Heimildir

  • Minningargrein í Morgunblaðinu, 9. febrúar 1954.