Karólína Sigurðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. ágúst 2011 kl. 18:15 eftir Snorrima (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. ágúst 2011 kl. 18:15 eftir Snorrima (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Karolína Sigurðardóttir
Jón og Karolína

Karolína fæddist þann 9. október 1899 að Vallarhjáleigu í Hvolhreppi. Hún lést þann 10. ágúst 1989 á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum. Karolína var dóttir hjónanna Geirlaugar Guðmundsdóttur, frá Steinum undir Eyjafjöllum og Sigurðar Unasonar, sjómanns.

Karolína giftist Jóni Sigurðssyni, Jónssonar frá Syðstu Mörk undir Eyjafjöllum. Karolína og Jón byggðu sér húsið Ártún við Vesturveg 20 en byggðu svo síðar húsið nr. 73 við Vestmannabraut, eftir að hafa misst Ártún í hendur „óvandaðs manns“ eins og Sigurður Diddi pabbi komst að orði í minningargrein um Kristínu systur sína. Á Vestmannabrautinni bjuggu Jón og Karolína til dánardægurs.

Karolína og Jón gengu í hjónaband í nóvember 1922 en Karolína var ættuð úr Rangárþingi og voru þau hjón nokkuð skyld út frá Högna Sigurðssyni. Hjónaband Jóns og Karolínu varaði í 57 ár. Þau hófu sinn búskap í Laugardal hjá Eyjólfi og Nikolínu. Árið 1926 fluttu þau í nýbyggt og vandað Steinhús að Vesturvegi 20 er Jón nefndi Ártún. Þar bjuggu þau að upphafi seinni heimsstyrjaldar er Jón byggði annað hús þeirra hjóna að Vestmannabraut 73.

Karolína og Jón eignuðust fjögur börn, 1) Geirlaugu, f. 20. júní 1923 - d. 31. maí 1995, 2) Kristínu, f. 12. janúar 1926 - d. 9. ágúst 2004, 3) Margréti, f. 9. október 1931 og 4) Sigurð Didda pabba, f. 24. júlí 1940 - d. 25. júlí 2011.