Karólína Kristín Oddsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. júlí 2013 kl. 14:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. júlí 2013 kl. 14:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Karólína Kristín Oddsdóttir''' húsfreyja í Jómsborg fæddist 21. október 1856 og lést 12. september 1936.<br> Faðir hennar var Oddur bóndi í Höfðakoti í Setbergs...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Karólína Kristín Oddsdóttir húsfreyja í Jómsborg fæddist 21. október 1856 og lést 12. september 1936.
Faðir hennar var Oddur bóndi í Höfðakoti í Setbergssókn 1855, Hellnafelli þar 1860, síðar á Kirkjufelli þar, í Árnabotni í Hraunsfirði 1890, f. 2. apríl 1823 í Setbergssókn, Jónsson, í Drápuhlíð 1801, f. 22. febrúar 1790, Illugasonar bónda, hreppstjóra, fálkafangara og meðhjálpara í Drápuhlíð í Helgafellssveit, f. 1759, d. 4. febrúar 1799, Illugasonar, og konu Illuga í Drápuhlíð, Ingibjargar húsfreyju og ekkju þar 1801, f. 1760, Magnúsdóttur.

Móðir Karólínu og kona Odds Jónssonar var Kristín Magnúsdóttir húsfreyja, f. 21. ágúst 1832, d. 8. apríl 1917.

Maður Karólínu Kristínar var Jón Sighvatsson bóksali og bókavörður, f. 4. júlí 1856, d. 5. desember 1932.
Börn Karólínu Kristínar og Jóns voru:
1. Þorsteinn Johnson bóksali, f. 10. ágúst 1884, d. 16. júní 1959, þríkvæntur, - síðast kvæntur Guðrúnu Árnadóttur, f. 23. desember 1903, d. 24. október 1999.
2. Oddur Jónsson, f. 17. júlí 1885. Hann fluttist til Vesturheims. (Samkv. Sögu Vestmannaeyja 1946 var Oddur í Bandaríkjaher í heimsstyrjöldinni 1914-1918. „Oddur á nú heima í Detroit í Bandaríkjunum,“ segir þar (1946).
3. Sæmundur Jónsson útgerðarmaður, f. 2. apríl 1888, d. 31. mars 1968. Kona hans var Guðbjörg Jónína Gísladóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1880, d. 29. nóvember 1969.
4. Kristín Jónsdóttir húsfreyja í Garðhúsum, f. 7. ágúst 1890, d. 21. nóvember 1968, kona Jóns Waagfjörðs málara og bakara, f. 15. október 1883, d. 2. mars 1969.
5. Jónína Jónsdóttir húsfreyja á Hlíðarenda, f. 11. júlí 1892, síðast í Hafnarfirði, d. 21. mars 1976. Á árinu 1920 var hún húsfreyja á Hlíðarenda, kona Björns Jónssonar.

Systir Karólínu Oddsdóttur í Jómsborg var:
Guðrún Margrét Oddsdóttir, f. 19. ágúst 1854, d. í Eyjum í júní 1910.


Heimildir