Jón Guðmundsson (formaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 14:15 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 14:15 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Guðmundsson fæddist 15. júlí 1905 og lést 4. mars 1972. Hann bjó í Miðey við Heimagötu 33 og á Kirkjubæjarbraut.

Jón var formaður á mótorbátnum Ver.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðmund:

Jafnan sigli jagtar braut
Jón frá Goðalandi,
afla löngum háan hlaut
hetjan síróandi.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Jón Guðmunds, sannur sonur,
sýnir þétt aflann fína.
Ver stýrir bragninn bæri,
bárur þó ýfi Kári.
Bólgnum í brima svelgi
blakk súða lætur flakka.
Heppinn sá kólgu kappi
kann sín á miðum hranna.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.