Jess Thomsen Christensen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. febrúar 2016 kl. 14:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. febrúar 2016 kl. 14:07 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jess Thomsen Christensen kaupmaður og verslunarstjóri í Godthaab fæddist 1816.

Jess var líklega sá, sem var assistent við Knutzonsverslun í Reykjavík 1835.
Hann var factor við Godthaabsverslun 1840.
Þau Jens fóru úr landi 1845 barnlaus, en þeim fylgdi Carolina Augusta Abel systir Jensine 11 ára. Þau komu aftur 1849 og með þeim fósturbarnið Ane Cathrine Jörgensen 6 ára.
Hann var í Nöjsomhed 1852 með konu sinni og Cathrine.
Þau fóru alfarin til Kaupmannahafnar 1853 með Cathrine Jörgensen 8 ára.
Cathrine (Cathinka) fósturdóttir þeirra giftist síðar Christian Ziemsen kaupmanni í Reykjavík. Þau voru foreldrar Jes Ziemsens kaupmanns, Knud Ziemsens borgarstjóra í Reykjavík, Christens afgreiðslumanns og konsúls og Cathinka konu Jóhannesar Sigfússonar yfirkennara.

Jess keypti Godthaabsverslun ásamt mági sínum Jens Christian Thorvald Abel 10. júní 1847. Kaupverðið var 13.000 ríkisbankadalir í silfri, en þeir höfðu greitt kaupverðið að fullu árið 1855.
Verslunina ráku þeir til ársins 1858, en 26. júní á því ári seldu þeir félagar hana Hans Edvard Thomsen.
Jess sat yfirleitt í Kaupmannahöfn að vetrinum.

Kona Jess, (3. desember 1841), var Jensine Marie Andrea Abel, f. 1821. Hún var dóttir Abels sýslumanns og konu hans Diderikke Claudine Abel húsfreyju.
Fósturbarn þeirra var
1. Ane Cathrine (Cathinka/Anna Cathinca Jörgensen) Jörgensen, síðar Ziemsen, f. um 1845.


Heimildir