Jens Christian Thorvald Abel

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. ágúst 2014 kl. 21:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. ágúst 2014 kl. 21:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jens Christian Thorvald Abel''' kaupmaður í Godthaab, - skrifað Jens Christjan Dorval í prestþj.bók, nefndur Thorvald Abel í Eyjum -, fæddist 24. maí 1823 á [[Vesturh...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jens Christian Thorvald Abel kaupmaður í Godthaab, - skrifað Jens Christjan Dorval í prestþj.bók, nefndur Thorvald Abel í Eyjum -, fæddist 24. maí 1823 á Vesturhúsum og mun hafa látist í Danmörku.
Foreldrar hans voru Johan Nikolai Abel sýslumaður og kona hans Diderikke Abel húsfreyja.

Thorvald ólst upp í Eyjum. Hann var höndlunarþjónn í Godthaab 1844, keypti verslunina ásamt mági sínum Jens Thomsen Christensen 10. júní 1847. Kaupverðið var 13.000 ríkisbankadalir í silfri, en þeir höfðu greitt kaupverðið að fullu árið 1855
Verslunina ráku þeir til ársins 1858, en 26. júní á því ári seldu þeir félagar hana H.E.Thomsen.
Þau Jóhanna eignuðust 5 börn, en misstu elsta barnið á öðru ári.
Þegar Jóhann Bjarnasen verslunarstjóri lést 1845, tóku þau Jóhanna í fóstur yngsta barn hans og Sigríðar systur Jóhönnu, Augustu Bjarnasen, f. 23. ágúst 1841. Hún fylgdi þeim úr landi.
Fjölskyldan bjó í Godthaab, en við fæðingu yngsta barnsins 1859 bjuggu þau í Stakkagerði. Við sóknarmannatal 1859 voru þau hinsvegar búsett í Garðinum og þaðan fluttust þau úr landi 1860.

Kona Thorvalds Abels, (30. ágúst 1844), var Jóhanna Jónsdóttir Abel húsfreyja, f. 4. júní 1819.
Börn þeirra hér:
1. Dideriche Johanne Sigríður Abel, f. 4. september 1844 í Godthaab, d. 29. júlí 1846. (Fæðingar hennar er aðeins getið í karlaskrá prestþjónustubókar).
2. Johan Jes Abel, f. 17. september 1848 í Godthaab.
3. Didrikke Jensine Augusta, f. 13 janúar 1851 í Godthaab.
4. Jóhanna Björg Þóra Sigríður Abel, f. 10. febrúar 1856 í Godthaab.
5. Jonine Ragnheiður Kristine Abel, f. 23. febrúar 1859 í Stakkagerði.
Fósturdóttir þeirra var
6. Augusta Bjarnasen, f. 23. ágúst 1841.


Heimildir