Júlíus Guðmundsson (Borg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. mars 2013 kl. 11:12 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. mars 2013 kl. 11:12 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Júlíus Guðmundsson færð á Júlíus Guðmundsson (Borg))
Fara í flakk Fara í leit

Júlíus Guðmundsson var fæddur árið 1868 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Guðmundur Ögmundsson í Borg á Stakkagerðistúni og Margrét Halldórsdóttir, sem þá var bústýra hans. Þau giftust 1874. Júlíus var hálfbróðir Ástgeirs Guðmundssonar í Litlabæ og svili hans. Hann bjó lengi á Seyðisfirði eystra, stundaði þar verkamannavinnu; fluttist síðan til Reykjavíkur og lést þar um miðja 20. öld.



Heimildir