Jórunn Lilja Magnúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. ágúst 2016 kl. 17:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. ágúst 2016 kl. 17:04 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jórunn Lilja Magnúsdóttir húsfreyja, Boðaslóð 6, fæddist 5. desember 1919 í Dvergasteini og lést 14. febrúar 2008.
Foreldrar hennar voru Magnús Magnússon skipasmiður í Dvergasteini, f. 6. október 1882, d. 22. október 1961 og k.h. Oddný Erlendsdóttir, f. 11. október 1883, d. 9. ágúst 1969.
Jórunn Lilja var lærð ljósmóðir og stundaði ljósmóðurstörf um skeið.
Maður hennar Úraníus Guðmundsson vélstjóri, f. 28. desember 1914, d. 17. júní 1968.
Börn þeirra:
1. Viktor Þór Úraníusson, trésmiður í Eyjum og á Reykjalundi, f. 27. janúar 1942 á Flötum 10.
2. Pálína Úraníusdóttir, starfskona á Sjúkrahúsinu, f. 5. september 1950 á Landspítalanu.
3. Gylfi Þór Úraníusson vélstjóri, f. 10. nóvember 1953, d. 30. september 2012.
4. Jón Trausti Úraníusson, vinnuvélastjóri, f. 9. júní 1952, dó af slysförum í hlíðum Eldfells 28. júní 1993.
5. Skúli Úraníusson, bifreiðastjóri, f. 23. maí 1956 á Brekastíg 8.
6. Oddgeir Magnús Úraníusson, sjómaður, f. 30. október 1958 í Eyjum.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.