„Jórunn Guðný Guðmundsdóttir (Ömpuhjalli)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Jórunn Guðný Guðmundsdóttir''' frá Ömpuhjalli fæddist 1. október 1859 og lést 24. september 1883.<br> Foreldrar hennar voru [[Guðný Árnadóttir (Ömpu...)
 
m (Verndaði „Jórunn Guðný Guðmundsdóttir (Ömpuhjalli)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 24. mars 2014 kl. 14:30

Jórunn Guðný Guðmundsdóttir frá Ömpuhjalli fæddist 1. október 1859 og lést 24. september 1883.
Foreldrar hennar voru Guðný Árnadóttir húsfreyja, f. 27. desemeber 1834, d. 7. desember 1916 í Vesturheimi, og maður hennar Guðmundur Árnason tómthúsmaður, sjómaður og meðhjálpari, skírður 25. september 1827, d. 9. október 1879.

Jórunn var með foreldrum sínum og Kristínu systur sinni í Ömpuhjalli 1860, með þeim og systrum sínum Kristínu, Margréti og Jónínu Ingibjörgu þar 1870 og með ekkjunni móður sinni með systrum sínum fjórum í Mandal 1880. Karólína Guðrún hafði þá bæst við hópinn.
Móðir hennar fór til Vesturheims 1882 með Karólínu Guðrúnu 6 ára gamla. Jóhanna Sigríður systir hennar fór Vestur 1883.
Jórunn Guðný lést úr lungnabólgu í Eyjum 1883, ógift og barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.