Jóna Hrönn Bolladóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. janúar 2006 kl. 10:56 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. janúar 2006 kl. 10:56 eftir Inga (spjall | framlög) (flokkur fólk)
Fara í flakk Fara í leit

Jóna Hrönn Bolladóttir er fædd 21. júlí 1964 í Hrísey. Hún er dóttir Bolla Gústavssonar, vígslubiskups, og Matthildar Jónsdóttur húsmóður, og alin upp í Laufási við Eyjafjörð. Maki Jónu Hrannar er Bjarni Karlsson sóknarprestur. Hún á þrjú börn.

Jóna Hrönn varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1984 og cand. theol. frá Háskóla Íslands árið 1991.

Meðan á guðfræðinámi stóð starfaði Jóna Hrönn sem æskulýðsfulltrúi við Laugarneskirkju. Hún vígðist síðan til prestsþjónustu í Vestmannaeyjum árið 1991. Jóna Hrönn starfaði sem prestur við Dómkirkjuna í Reykjavík í hálfu starfi árið 1998 og í hálfu starfi sem miðborgarprestur KFUM/K til ársins 2001. Hún hefur verið í fullu starfi sem miðborgarprestur þjóðkirkjunnar frá 2001.

Er Jóna Hrönn var prestur í Vestmannaeyjum lifnaði mikið yfir barna- og unglingastarfi í Landakirkju. Geysivinsælar poppmessur voru oft og tíðum haldnar í kirkjunni ásamt því að barnakórinn Litlir lærisveinar voru stofnaðir.

Vinn við efnisgerð fyrir sunnudagaskóla kirkjunnar á vegum fræðsludeildar Biskupsstofu og Skálholtsútgáfu.

Jóna Hrönn hefur verið varaborgarfulltrúi í Reykjavík frá 2002 fyrir R-listann. Hún situr í áfallateymi barna/unglinga á vegum Rauðakross Íslands ásamt því að gegna fjölda nefndarstarfa á vegum Reykjavíkurborgar, m.a. formennsku í stjórn Kirkjubyggingarsjóðs Reykjavíkur og setu í Velferðarráði.