Jón Nikulásson (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. janúar 2020 kl. 20:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. janúar 2020 kl. 20:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: 250px|thumb|''Jón Nikulásson. '''Jón Nikulásson''' á Kirkjubæ, sjómaður fæddist 6. ágúst 1903 á Kljá í Hel...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Jón Nikulásson.

Jón Nikulásson á Kirkjubæ, sjómaður fæddist 6. ágúst 1903 á Kljá í Helgafellssveit á Snæfellsnesi og lést 1. júlí 1978.
Foreldrar hans voru Nikulás Þorsteinsson bóndi, f. 22. júní 1863 í Akureyjum á Breiðafirði, d. 1. mars 1914, og kona hans Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja, f. 13. júlí 1867, d. 9. maí 1953.

Jón var með foreldrum sínum á Kljá fyrstu ár sín, síðast 1908, en var tökubarn í Hrísum í Helgafellssveit 1909 og enn 1914.
Hann var fluttur að Mölum í Bolungarvík til Guðnýjar móðursystur sinnar og manns hennar Péturs Oddssonar kaupmanns og var þar fósturbarn frá 1915.
Jón fluttist til Eyja 1939, stundaði sjómennsku og var í áhöfn Herjólfs frá 1959 til starfsloka sinna.
Þau Salgerður (Sala á Kirkjubæ) giftu sig 1940, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu í Vestri-Staðarbæ á Kirkjubæ, byggðu hús suðvestur af gamla bænum og bjuggu þar uns Gosið eyddi. Þá fluttust þau til Reykjavíkur, bjuggu í Hraunbæ 10.
Jón lést 1978 og Salgerður 1981.

I. Kona Jóns, (26. mars 1940), var Salgerður Sveinbjörg Arngrímsdóttir húsfreyja, f. 20. október 1905 í Vestri-Staðarbæ, d. 25. mars 1981.
Barn þeirra:
1. Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. janúar 1940.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.