Jón Magnússon (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júní 2005 kl. 08:47 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júní 2005 kl. 08:47 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón MAgnússon, Sýslumaður. Alþingismaður Vestmannaeyja 1902 til 1913. Fæddur í Múla í Aðaldal 16. janúar 1859. Dáinn í ferð með Kristjáni X í Nesi í Norðfirði 23. júní 1926. Foreldrar Magnús (fæddur 31. mars 1828, dáinn 19. mars 1901) síðast prestur í Laufási Jónsson bóndi í Kristnesi í Eyjafirði, síðar í Víðimýri Jónssonar og konu hans Vilborgar (fædd 28. ágúst 1929, dáin 8. maí 1916) Sigurðardóttir bónda að Hóli í Kelduhverfi Þorsteinssonar. — K. (12. maí 1892) Þóra (fædd 17. maí 1858), dáin 5. september 1947) Jónsdóttir alþingismanns og dómstjóra Péturssonar og síðari konu hans Sigþrúðar Friðriksdóttur Eggerz. Stúdent í Reykjavík 1881. Las lögfræði við Hafnarháskóla frá 1881 til 1883, hvarf frá námi en hóf það að nýju 1889 og lauk lögfræðiprófi 1891. Skrifari hjá Júlíusi amtmanni Havsteen á Akureyri 1884-1889. Skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum 1891. Skipaður landritari 1896-1904. Skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1904-1908. Bæjarfógeti í Reykjavík 1908-1917. Skipaður 4. janúar 1917 forsætis-, dóms, krikju- og menntamálaráðherra en baðst lausnar 12. ágúst 1919. Aftur skipaður forsætisráðherra 25. febrúar og í þriðja sinn 24 mars og var það þar til hann lést 23. júní 1926.