Jón Jónsson (Svaðkoti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2015 kl. 20:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2015 kl. 20:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Jón Jónsson (Svaðkoti)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Jón Jónsson öryrki í Svaðkoti og síðan í Nýjabæ fæddist 28. maí 1878 og lést 13. ágúst 1930.
Foreldrar hans voru Guðrún Bergsdóttir húsfreyja í Hallgeirsey, síðan í dvöl í Svaðkoti, f. 30. nóvember 1832, d. 1913, og maður hennar Jón Brandsson bóndi og formaður, f. 2. október 1835, drukknaði við Eyjar 25. mars 1893.

Systkini Jóns voru
1. Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja í Hallgeirsey, Svaðkoti og Suðurgarði f. 20. janúar 1866, d. 20. mars 1953, gift Jóni Guðmundssyni bónda.
2. Guðbrandur Jónsson, f. 26. október 1869, d. 24. febrúar 1870.
3. Steinvör Guðrún Jónsdóttir tvíburi, húsfreyja í Nýjabæ, f. 10. janúar 1873, d. 6. febrúar 1942. Maður hennar var Jónas Helgason bóndi.
4. Guðrún Guðný Jónsdóttir tvíburi, vinnukonu í Þorlaugargerði, f. 10. janúar 1873, d. 9. september 1957.

Jón var með foreldrum sínum meðan beggja naut við. Faðir hans drukknaði er hann var tæpra 15 ára. Hann fylgdi síðan móður sinni, var með henni í Landeyjum og síðan í Svaðkoti með henni hjá Ingibjörgu Jónsdóttur og Jóni Guðmundssyni, en eftir lát móður sinnar dvaldi hann hjá Steinvöru systur sinni í Nýjabæ.
Jón var andlega þroskaheftur, svo skráður hjá presti við húsvitjanir („idiot“).
Jón lést 1930.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.